3.4.2009 | 09:45
Hvar er þetta fólk? Engin mætti í atvinnuviðtal
Enginn mætti í atvinnuviðtal hjá Lýðvarpinu þegar leitað var til atvinnumiðlunar vinnumálastofnunar.
Eftir að hafa árangurslaust reynt að ná sambandi við fólk í atvinnuleit í gegnum atvinnumiðlun Vinnumálastofnunar voru störf á vegum Lýðræðishreyfingarinnar auglýstar á vefnum job.is.
Ekki einn einasti umsækjandi mætti í atvinnuviðtal frá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar þegar þar var leitað eftir fólki til ýmissa starfa á nýjum fjölmiðli Lýðvarpinu FM100.5 og frettavakt.is. Annaðhvort eru tölur um að nær 18000 manns séu á atvinnuleysisskrá stórýktar eða skrifræði hefur kaffært Vinnumálastofnun með þeim hætti að starfsfólkið snýst um sjálft sig án þess að senda atvinnulausum upplýsingar um lausar stöður með skilmerkum hætti.
XP.is hefur auglýst stöður þingmanna og ráðherra lausar til umsóknar. Launakjör eru frá kr. 600,000 á mánuði auk ýmissa fríðinda.
Nokkur sæti eru enn laus á framboðslistum XP persónukjöri Lýðræðishreyfingarinnar í kjördæmum landsins. Nýtt rafrænt Alþingi sem kynnt er á vefnum xp.is mun hjálpa nýliðum að takast á við verkefnin á Alþingi eftir kosningar í nánum tengslum við þjóðina.
XP er eina framboðið sem býður fram óraðaða lista, persónukjör og beint lýðræði í komandi kosningum. XP er að fá slíkan meðbyr og stuðning í grasrótinni að nánast annar hver maður sem beðinn er um það skrifar undir meðmælalista og búið er að safna öllu meðmælendum í báðum kjördæmum í Reykjavík og verið að klára landsbyggðina. Í skoðanakönnun á vefnum xp.is vilja 70.9% aðspurðra beint og milliliðalaust lýðræði.
Sækja má um stöður þingmanna á slóðinni: http://job.xp.is
17.944 á atvinnuleysisskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook