Færsluflokkur: Evrópumál

Bjóða Magnús Ólafsson leikara velkominn

xP Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson leikara velkominn

Magnús Ólafsson Ekki er farið í manngreinarálit hjá xP Lýðræðishreyfingunni. Hjá xP eru allir velkomnir. Það eru síðan kjósendur sjálfir sem velja sína þingmenn af lista xP í persónukjöri og engin önnur uppröðun fer fram á listum Lýðræðishreyfingarinnar.

Þetta er ólíkt vinnubrögðum Borgarahreyfingarinnar en þar hafa sjálfskipaðir leiðtogar sem enginn hefur kosið um skipað sjálfa sig í efstu sætin fyrir luktum dyrum í flokksræðislegu bakherbergismakki.

Þegar Ástþór Magnússon lagði til lýðræðisleg vinnubrögð var hann í orðsins fyllstu merkingu borinn út af fundum hreyfingarinnar í Borgartúni og leikhúsinu Iðnó. Nú hefur Borgarahreyfingin hafið ófrægingarherferð gegn Magnúsi Ólafssyni leikara sem einnig vildi að menn sameinuðu kraftana til að koma á lýðræðisbreytingum.

Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson leikara velkominn og er honum boðið sæti á lista xP í Kraganum þar sem kjósendum yrði síðan gefinn kostur á að ákveða það hvort þeir vilja Magnús til starfa á Alþingi Íslendinga. 

xp2.jpg Feiknalegur meðbyr er með framboði xP Lýðræðishreyfingarinnar og búið að safna öllum tilskyldum fjölda meðmælenda í báðum Reykjavíkurkjördæmum. Nú er verið að klára undirskriftarsöfnun í öðrum kjördæmum og hefur annar hver maður sem leitað er til skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna.

xP Lýðræðishreyfingin hefur einnig fengið fjölda nýrra og efnilegra frambjóðenda til liðs við sig síðasta sólarhring eftir að störf þingmanna og ráðherra voru auglýst laus til umsóknar á job.is. Launakjör eru frá um 600,000 krónum á mánuði auk ýmissa fríðinda og sækja má um starfið á slóðinni: http://job.xp.is

Stöður þingmanna og ráðherra auglýstar lausar til umsóknar

skjaldarmerki_lina.jpg XP.is hefur auglýst stöður þingmanna og ráðherra lausar til umsóknar. Launakjör eru frá kr. 600,000 á mánuði auk ýmissa fríðinda.

Eftir að hafa árangurslaust reynt að ná sambandi við fólk í atvinnuleit í gegnum atvinnumiðlun Vinnumálastofnunar voru störf á vegum Lýðræðishreyfingarinnar auglýstar á vefnum job.is.  

Ekki einn einasti umsækjandi mætti í atvinnuviðtal frá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar þegar þar var leitað eftir fólki til ýmissa starfa á nýjum fjölmiðli Lýðvarpinu FM100.5 og frettavakt.is.  Annaðhvort eru tölur um 18000 manns á atvinnuleysisskrá stórýktar eða skrifræði hefur kaffært Vinnumálastofnun með þeim hætti að starfsfólkið snýst um sjálft sig án þess að senda atvinnulausum upplýsingar um lausar stöður með skilmerkum hætti.

xp2.jpg Nokkur sæti eru enn laus á framboðslistum XP persónukjöri Lýðræðishreyfingarinnar í kjördæmum landsins.  Nýtt rafrænt Alþingi sem kynnt er á vefnum xp.is mun hjálpa nýliðum að takast á við verkefnin á Alþingi eftir kosningar í nánum tengslum við þjóðina.

XP er eina framboðið sem býður fram óraðaða lista, persónukjör og beint lýðræði í komandi kosningum. XP er að fá slíkan meðbyr og stuðning í grasrótinni að nánast annar hver maður sem beðinn er um það skrifar undir meðmælalista og búið er að safna öllu meðmælendum í báðum kjördæmum í Reykjavík og verið að klára landsbyggðina. Í skoðanakönnun á vefnum xp.is vilja 70.9% aðspurðra beint og milliliðalaust lýðræði.

Sækja má um stöður þingmanna á slóðinni: http://job.xp.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband